Sömu lið í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar annað árið í röð
ANDRZEJ IWANCZUK / AFP

Danski handboltasérfræðingurinn Rasmus Boysen vekur athygli á áhugaverðri þróun og að hans mati áhyggjum á þróun í evrópskum handbolta.

Í fyrsta sinn frá stofnun Evrópukeppni félagsliða árið 1956 eru sömu átta liðin í topp 8 í Meistaradeildinni tvö ár í röð. Liðin sem um ræðir eru:

  • SC Magdeburg
  • FC Barcelona
  • Álaborg
  • Füchse Berlin
  • SC Pick Szeged
  • HBC Nantes
  • Sporting CP Handebol
  • Veszprém KC

Samkvæmt Boysen er þetta ekki jákvæð þróun. Hann bendir á að Meistaradeildin sé í auknum mæli að þróast í eins konar lokaða „ofurdeild“, þar sem fá ný lið komast að. Þá bendir Rasmus á þá staðreynd að aðeins ein breyting var á liðunum 16 sem léku í Meistaradeildinni í ár frá síðustu leiktíð þar sem danska félagið GOG kom inn í stað Fredericia.

Vonast Boysen til að fyrirhuguð stækkun keppninnar á næsta tímabili opni dyr fyrir fleiri félög og auki samkeppni í evrópskum handbolta.

Þetta eru liðin sem mætast í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar:

Füchse Berlin - Veszprém

Barcelona - Nantes

Álaborg - Sporting

Magdeburg - Pick Szeged

Átta liða úrslitin hefjast í lok apríl.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top