Þóra Lind framlengir við Fram
Fram

Sjötta daginn í röð tilkynnti Fram um framlengingu á samningi hjá leikmanni innan þeirra raða en í gær tilkynnti félagið að vinstri hornamaðurinn, Þóra Lind Guðmundsdóttir hafi framlengt samningi sínum til tveggja ára.

Í tilkynningunni frá félaginu kemur fram að félagið sé hvergi nærri búið að tilkynna framlengingarnar sem hafa átt sér stað undanfarna daga. Við í Handkastinu bíðum spennt eftir fleiri tilkynningum frá félaginu.

,,Þóra er vinstri hornamaður sem hefur leikið hjá okkur á þremur vígstöðum í vetur. Hún er enn í 3. flokki en hefur leikið bæði með Grillliðinu okkar sem og Olís deildar liðinu í vetur. Þóra kemur úr mikilli Framfjölskyldu en foreldrar hennar hafa verið virk hjá okkur í starfinu sem og bræður hennar tveir," segir í tilkynningunni frá Fram.

,,Við erum lánsöm að njóta krafta Þóru áfram og hlökkum til að fylgjast með framþróun hennar á næstu tímabilum," sagði ennfremur í tilkynningunni.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top