Tveimur öðrum leikjum var að ljúka á Evrópumótinu í Noregi, Svíþjóð og Danmörku en leikið var í B og D riðlum.
Portúgal og Rúmenía mættust í fyrsta leik B riðils og vann Portúgal sex marka sigur 40-34 en staðan í hálfleik var 23-15 fyrir Portúgal sem mæta Norður Makedóníu í næsta leik á meðan Rúmenía mætir Danmörku.
Í D-riðli mættust Slóvenía og Svartfjallaland og var sá leikur töluvert meiri spenna og Slóvenía unnu með einu marki 41-40. Staðan í hálfleik var 19-18 fyrir Slóveníu. Slóvenía mætir Sviss í næsta leik á meðan Svartfjallaland mætir Færeyjum.
Úrslit dagsins:
Portúgal - Rúmenía 40-34
Slóvenía - Svartfjallaland 41-40



