Eline Osland (Instagram)
Vítakast Eline Osland leikmanns Fana í norsku úrvalsdeildinni hefur heldur betur slegið í gegn á veraldarvefnum síðustu daga en Eline skoraði ótrúlegt mark úr vítakasti sínu í níu marka sigri Fana á Gjerpen á dögunum. Þar hermdi hún eftir 16 ára gömlu vítakasti frá landa sínum, Eivind Tangen fyrrum landsliðsmanni Noregs sem lagði handboltaskóna á hilluna í sumar eftir veru sína hjá Skjern undanfarin ár í dönsku úrvalsdeildinni. Hér að neðan má sjá bæði vítakastið frá Eline Osland og einnig vítakastið frá Eivind Tangen sem hann tók þegar hann var 15 ára. Vítakast Eline Osland: Vítakast Eivind Tangen: Hress styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina - Í tilefni af þess fá allir hlustendur og lesendur Handkastsins 2 fyrir 1 af öllum boozt á Hressbarnum út október. Hress er staðsett á Dalshrauni 11 í Hafnarfirði. Verði ykkur að góðu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.