wStjarnan (Sigurður Ástgeirsson)
Markmannsþjálfari kvennalið Stjörnunnar í Olís-deild kvenna, Hallgrímur Jónasson hefur verið úrskurðaður í tveggja leikja bann af aganefnd HSÍ. Þetta kemur fram í tilkynningu frá aganefndinni í dag. Þar segir að Hallgrímur hafi hegðað sér mjög ódrengilega að loknum leik Stjörnunnar og KA/Þór í Olísdeild kvenna síðasta laugardag en Hallgrímur fékk að líta rauða spjaldið eftir leik. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:10 a). Með úrskurði aganefndar dags. 04.11.2025 var Stjörnunni gefið færi á að skila greinargerð áður en ákvörðun yrði tekin um viðurlög vegna málsins. ,,Greingargerð barst frá ekki,“ segir í úrskurði aganefndar í dag. Leikbannið tekur gildi á morgun, fimmtudaginn 6. nóvember og verður Hallgrímur því í leikbanni er kvennalið Stjörnunnar mætir ÍR í 8.umferðinni og ÍBV í 9.umferðinni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.