Deildarkeppninni í Portúgal lokið og úrslitakeppni framundan
Julien Kammerer / DPPI via AFP

Orri Freyr Þorkelsson og liðsfélagar hans í Sporting Lissabon urðu deildarmeistarar í Portúgölsku deildinni en liðið hans Sporting hlaut fullt hús stiga úr þeim 22 leikjum sem voru spilaðir.

Þorsteinn Leó Gunnarsson skoraði þrjú mörk í lokaleik Porto sem fram fór í gær þegar liðið sigraði Avanca Bioria, 30-41. Porto hafnar í öðru sæti deildarinnar stigi á undan Stiven Tobar Valencia og liðsfélögum í Benfica.

Fjörgur efstu lið deildinnar fara í riðil sem keppast um portúgalska meistaratitilinn og hefst sú keppni 26.mars. Fyrirkomulagið í Portúgal er þannig að stigin sem liðin fá í deildinni helmingast og þau lið sem enda í oddatölu eru námunduð upp í heila tölu þannig Porto og Benfica munu bæði byrja með 29 stig, fjórum stigum á eftir Sporting sem verða með 33 stig.

Standings provided by Sofascore

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top