FH vann góðan fimm marka útisigur á Selfossi 36-31, í Olís-deild karla í kvöld. Hafnfirðingar tóku leikinn föstum tökum með öflugum kafla undir lok fyrri hálfleiks og Selfyssingum tókst aldrei að brúa bilið eftir það. Um var að ræða næst síðasta leikinn í 5.umferðinni en umferðinni lýkur á morgun þegar HK og Stjarnan mætast í Kórnum klukkan 18:00. Leikurinn á Selfossi var í járnum framan af. Liðin skiptust á að hafa frumkvæðið og staðan var meðal annars 7-7 áður en Selfoss komst í 8-7. Þá kom hins vegar frábær kafli hjá FH sem skoraði sex mörk í röð og breytti stöðunni í 8-13. Selfoss náði að minnka muninn í þrjú mörk, 12-15, en FH svaraði aftur og jók forskotið. Gestirnir leiddu 21-15 þegar liðin gengu til búningsherbergja. FH hélt áfram að stjórna leiknum eftir hlé. Munurinn fór mest í átta mörk, fyrst í 19-27 og síðar í 22-30, 23-31 og 24-32. Selfyssingar gáfust þó ekki upp og náðu að minnka muninn niður í fimm mörk, 27-32, þegar rúmar sex mínútur voru eftir. Nær komust heimamenn ekki og FH sigldi sigrinum örugglega í höfn. Lokatölur urðu 36-31. Ómar Darri Sigurgeirsson var markahæstur FH með sjö mörk og Jón Bjarni Ólafsson skoraði sex. Brynjar Narfi Arndal og Eiður Rafn Valsson skoruðu fjögur mörk hvor en Einar Rafn Eiðsson, Ingvar Dagur Gunnarsson og Símon Michael Guðjónsson þrjú hver. Hjá Selfossi var Hákon Garri Gestsson markahæstur með sjö mörk og Tryggvi Sigurberg Traustason skoraði sex. Anton Breki Hjaltason og Valdimar Örn Ingvarsson bættu við fjórum mörkum hvor. Þrátt fyrir tapið átti Alexander Hrafnkelsson stórleik í marki Selfoss. Hann varði 18 skot auk þess að skora eitt mark. Markverðir FH vörðu saman níu skot; Jón Þórarinn Þorsteinsson sex og Ólafur Rafn Gíslason þrjú.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.