Grótta og Selfoss 2 mættust í dag í Grill 66 deild karla en leikið var á Seltjarnarnesi. Fyrstu 20 mínúturnar var leikurinn stál í stál og hart barist. En síðustu 10 mínúturnar í fyrri hálfleik náðu Gróttu menn að kveikja betur á sér og keyrðu fram úr Selfyssingunum. Hálfleikstölur voru 21-14. Í seinni hálfleik var það sama upp á teningunum. Gróttu menn byrjaðu á fítons krafti og voru komnir 12 mörkum eftir einungis 5 mínútna leik í seinni hálfleik. Við þetta náðu Selfyssingar að vakna til lífsins á nýjan leik og klóruðu vel í bakkann. Nær komust þeir þó ekki en að minnka muninn í 4 mörk. Lokatölur urðu 34-29 fyrir Gróttu sem eru komnir aftur á sigurbraut eftir tapið á móti ÍR í síðustu umferð. Hjá Gróttu var Kári Kvaran með 8 mörk. Hannes Pétur Hauksson varði 16 skot og Þórður Árnason varði 3 skot. Hjá Selfoss var Ragnar Hilmarsson markahæstur með 6 mörk. Garðar Freyr og Egill Eyvindur vörðu samtals 16 skot. 

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.