Víðir og Fjölnir mættust í dag í Grill 66 deild karla en leikið var í Garðinum suður með sjó. Leikurinn var jafn til að byrja með en fljótlega fóru Fjölnis menn að taka yfirhöndina. Voru þeir alltaf einu skrefi á undan Víðis mönnum eftir það. Hálfleikstölur voru 13-16 fyrir gestina í Fjölni. Munaði miklu fyrir Víðismenn í dag að Eiríkur Guðni Þórarinsson var fjarri góðu gamni í dag. Það tók gestina í Fjölni ca. 10 mínútur í seinni hálfleik að slíta Víðismennina alveg frá sér. Mest náðu þeir 9 marka forskoti og urðu svo lokatölur 24-32. Heiðmar Örn Björgvinsson var markahæstur hjá Fjölni með 9 mörk. Hilmar Már Ingason varði 21 skot. Hjá Víði var Guðmundur Þórir Sigurðsson markahæstur með 8 mörk. Jan Krystof Widera varði 23 skot. 

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.