HK og Haukar mættust í Kórnum í tíundu umferð Olís deldar kvenna í leik sem var að ljúka. Haukar löggðu grunninn af góðum sigri í fyrri hálfleik en gestirnir voru sjö mörkum yfir í hálfleik, 9-16. Heimastúlkur mættu þó sterkt til leiks inn í síðari hálfleikinn og náðu að minnka muninn mest niður í þrjú mörk en nær komust HK ekki og Haukastúlkur lönduðu sex marka sigri og lokatölur í Kórnum 24-30 fyrir Haukum. HK er í áttunda sæti Olís deildarinnar á meðan Haukar eru á toppnum fjórum stigum á undan ÍBV sem á leik til góða. Atkvæðamest í liði HK í dag var Tinna Ósk Gunnarsdóttir en hún skoraði sex mörk. Hekla Sóley Halldórsdóttir skoraði fimm mörk og Inga Fanney Hauksdóttir skoraði fjögur, aðrar skoruðu minna. Jóhanna Margrét Sigurðardóttir var atkvæðamesti leikmaður vallarins en hún skoraði tíu mörk í leiknum. Rakel Oddný Guðmundsdóttir skoraði níu mörk og Aníta Eik Jónsdóttir skoraði fimm og aðrar minna. Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.