Stiven Tobar Valencia, nýr leikmaður Vals í Olís-deild karla stefnir á að komast aftur út í atvinnumennsku þrátt fyrir að hafa á dögunum skrifað undir samning við Hlíðarendafélagið til ársins 2028. Stiven hefur undanfarin ár leikið með Benfica í Portúgal. Stiven staðfestir í samtali við Handkastið að í samningi hans við Val sé ákvæði sem geri honum kleift að halda aftur út í atvinnumennsku. Stiven hefur verið sterklega orðaður við þýska úrvalsdeildarliðið HC Erlangen og hefur verið rætt um að hann gangi í raðir félagsins næsta sumar. „Viðræðurnar gengu mjög vel og við vorum að reyna finna lausn á þessu og við komumst að góðri niðurstöðu. Allt tók lengri tíma en maður vildi en þetta gekk upp að lokum,“ sagði Stiven í samtali við Handkastið um samningsviðræðurnar við Val. Stiven hefur verið frá keppni vegna meiðsla í öxl og þurfti að gangast undir aðgerð. Hann segir endurhæfinguna ganga vel en enn sé nokkur vinna fram undan áður en hann geti snúið aftur á handboltavöllinn. „Staðan á mér eftir aðgerðina er sú að öxlin er komin á þann stað sem ég vil vera á og núna þarf ég að vinna í því að ná almennilegri hreyfigetu innan vallar og það gerist bara á æfingum og skjóta.“ Hann vill ekki setja ákveðna dagsetningu á endurkomuna og segir mikilvægt að öðlast fullt traust á öxlinni áður en hann spilar sinn fyrsta leik fyrir Val. „Ég geri ráð fyrir því að spila minn fyrsta leik með Val þegar ég treysti mér til þess. Það er tímaspursmál hvenær ég treysti öxlinni aftur.“ Þrátt fyrir að hafa samið við Val til ársins 2028 leynir Stiven því ekki að markmiðið sé að komast aftur út í atvinnumennsku. Hann segir Valsmenn meðvitaða um þau áform og að samkomulag sé um að ræða málin þegar að því kemur. „Klásúlan mín hjá Val er sú að samtalið er opið og þeir vita að markmið mitt er að fara aftur út og ég stefni á að gera það. Þegar að því kemur þá verður það rætt og þeir eru ekkert að fara hindra það.“ Það verður því áhugavert að fylgjast með framhaldinu hjá Stiven, bæði hvenær hann snýr aftur á völlinn í búningi Vals og hvort orðrómurinn um möguleg félagaskipti til HC Erlangen næsta sumar verði að veruleika.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.