Óvissa ríkir um framtíð samstarfs KA og Þórs í kvennahandboltanum en samkvæmt heimildum Handkastsins rennur núverandi samstarfssamningur KA og Þórs um sameiginlegt kvennalið í handbolta út að loknu yfirstandandi tímabili. Samkvæmt heimildum Handkastsins hafa Þórsarar reynt að hefja viðræður við KA um áframhaldandi samstarf en fengið lítil viðbrögð. Þetta kom fram í nýjasta þætti Handkastsins þar sem Sérfræðingurinn vakti máls á stöðunni á Akureyri og velti því upp hvort samstarfi félaganna gæti verið að ljúka, rétt eins og gerðist á dögunum í kvennaknattspyrnunni. „Ég ætla að opna á eina óvænta umræðu sem ég hef ekki undirbúið ykkur fyrir. Á dögunum sleit KA samstarfi við Þór í kvennaknattspyrnunni en liðin hafa sent til keppni sameiginlegu liði Þórs/KA í rúmlega þrjá áratugi.“ Sérfræðingurinn greindi því næst frá því að samningur félaganna um sameiginlegt kvennalið í handbolta væri að renna út og að óvissa væri um framhaldið. „Ég ætla segja ykkur það að núverandi samningur milli KA og Þórs með kvennalið félaganna í handbolta lýkur eftir þessu tímabili. Samkvæmt mínum heimildum hafa Þórsarar reynt að hefja viðræður við KA um áframhaldandi samstarf en KA menn hafa litlu svarað.“ Hann sagði jafnframt að ákveðnar sögusagnir væru á kreiki um framtíðaráform KA í tengslum við aldarafmæli félagsins árið 2028. „Það sem ég hef heyrt er að KA fagnar 100 ára afmæli árið 2028 og það eru sögusagnir um það að KA vilji vera með KA í meistaraflokki í öllum deildum þegar félagið fagnar 100 ára afmælinu. Ég neita að trúa því að ákvörðun eins og þessi sé einungis tekin út frá því,“ sagði Sérfræðingurinn í nýjasta þætti Handkastsins. Í þættinum var málið rætt frekar og því velt upp hvort KA og Þór gætu farið hvort í sína áttina strax að loknu yfirstandandi tímabili og hvaða áhrif slík ákvörðun hefði á kvennahandboltann á Akureyri. Félögin hafa um árabil sameinað krafta sína í kvennahandboltanum og því ljóst að möguleg slit á samstarfinu myndu marka tímamót í handboltasögu bæjarins. KA/Þór situr í sjöunda sæti Olís-deildar kvenna með fjögur stig að lokinni fyrri umferð deildarkeppninnar. Umræðuna má heyra í heild sinni í nýjasta þætti Handkastsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.