Þýska úrvalsdeildarliðið Hamburg verður án danska leikstjórnandans Nicolaj Jørgensen næstu vikurnar vegna þrálátra hnémeiðsla. Félagið staðfesti tíðindin í dag en um er að ræða mikið áfall fyrir Hamburg sem fær þýsku meistarana í Magdeburg í heimsókn um næstu helgi. Jørgensen hefur verið einn mikilvægasti leikmaður Hamburg á tímabilinu og er markahæstur í liðinu með 69 mörk í ellefu leikjum. Auk þess hefur hann gefið 47 stoðsendingar í þýsku Bundesligunni. Daninn, sem er 26 ára gamall, hefur glímt við þrálát meiðsli í hné og verður nú settur í lengra hvíldar- og endurhæfingarferli. Samkvæmt þýska miðlinum BILD er um brjóskskemmdir í hnénu að ræða en félagið hefur ákveðið að meðhöndla meiðslin án skurðaðgerðar að svo stöddu. Forráðamenn Hamburg vonast til að Jørgensen geti snúið aftur í desember, helst fyrir leikina gegn Gummersbach 19. desember og Hannover-Burgdorf 22. desember. Ekki er þó ljóst nákvæmlega hvenær hann verður leikfær. Johannes Bitter, íþróttastjóri Hamburg, segir fjarveru Danans mikið áfall enda sé hann afar mikilvægur fyrir liðið. Bitter leggur jafnframt áherslu á að heilsa leikmannsins verði sett í fyrsta sæti og honum gefinn sá tími sem þarf til að ná fullum bata. Meiðslavandræði Hamburg hafa verið töluverð að undanförnu. Moritz Sauter er einnig frá vegna alvarlegra hnémeiðsla og því hefur félagið þurft að styrkja leikmannahópinn. Þýski landsliðsmaðurinn Luca Witzke gekk til liðs við Hamburg frá Flensburg í síðustu viku og verður nú enn mikilvægari hlekkur í sóknarleik liðsins. Hamburg situr í 13. sæti þýsku Bundesligunnar með sjö stig eftir tólf leiki og fær topplið Magdeburg í heimsókn á sunnudaginn kemur.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.