Haukastelpur mistókst að jafna draumabyrjun félagsins
Sævar Jónasson

Kvennalið Hauka verður að láta sér nægja átta sigurleiki í röð í upphafi tímabils eftir að hafa gert jafntefli við ÍBV á Ásvöllum um helgina. Þar með er ljóst að liðið jafnar ekki frábæra byrjun Hauka frá tímabilinu 2004–2005 þegar fyrstu 14 deildarleikirnir unnust.

Haukar höfðu unnið alla átta leiki sína fyrir viðureignina við ÍBV í 9. umferð Olís-deildar kvenna. Eyjakonur reyndust hins vegar erfiðar viðureignar og skoruðu tvö síðustu mörk leiksins í spennuþrungnum lokakafla. Jafntefli varð niðurstaðan og fyrsta tapaða stig Hauka á tímabilinu staðreynd.

Þótt sigurgangan hafi stöðvast sitja Haukar á toppi deildarinnar eftir fyrri umferðina með 17 stig af 18 mögulegum. ÍBV er í 2.sæti deildarinnar með 15 stig og Valur í 3.sætinu með 14 stig.

Byrjun liðsins frá 2004–2005 stendur því enn óhögguð, rúmlega tveimur áratugum síðar. Haukar hefðu þurft sex sigra til viðbótar til að jafna þá fjórtán leikja sigurgöngu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top