Danska stórliðið Álaborg glímir við töluverð meiðslavandræði í aðdraganda stórleiksins gegn Füchse Berlin í Meistaradeild Evrópu á miðvikudaginn. Danski landsliðsmaðurinn Mads Hoxer þurfti að yfirgefa völlinn í óvæntu 27-29 tapi Álaborgar gegn Skanderborg AGF í dönsku úrvalsdeildinni um helgina. Hægri skyttan hafði glímt við meiðsli eftir bikarleik Álaborgar gegn Sønderjyske í síðustu viku. Hann hóf leikinn gegn Skanderborg en varð að yfirgefa leikvöllinn í fyrri hálfleik og kom ekkert meira við sögu. Í samtali við TV 2 í hálfleik staðfesti Hoxer að meiðslin væru enn að angra hann. „Ég meiddist lítillega í bikarleiknum gegn Sønderjyske og við ætluðum að sjá hvort þetta gengi. En ég er enn að glíma við þetta,“ sagði Hoxer. Álaborg var einnig án Thomas Arnoldsen og því var brotthvarf Hoxers mikið áfall fyrir liðið. Álaborg tekur á móti Füchse Berlin á miðvikudaginn í Meistaradeild Evrópu. Ekki liggur fyrir hversu alvarleg meiðsli Hoxers eru eða hvort hann verði leikfær á miðvikudaginn. Álaborg hefur átt misjöfnu gengi að fagna í dönsku úrvalsdeildinni á tímabilinu og tapið gegn Skanderborg var annað heimatap liðsins í deildinni. Fyrr í haust tapaði liðið einnig á heimavelli gegn Fredericia, 26-33, eftir að hafa verið taplaust á eigin heimavelli í deildinni í rúm þrjú ár.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.