Fram vann fjögurra marka sigur á HK, 32–28, í Olís-deild karla í kvöld. Framarar náðu mest sjö marka forskoti en gestirnir minnkuðu muninn í eitt mark í síðari hálfleik og veittu heimamönnum harða keppni. Jafnræði var með liðunum á upphafsmínútunum en eftir stöðuna 3–3 náðu Framarar undirtökunum. Þeir komust í 6–3 og skoruðu síðar fjögur mörk í röð til að breyta stöðunni úr 7–5 í 11–5. Forskotið varð mest sjö mörk í fyrri hálfleik, 14–7, en staðan í hálfleik var 16–11. Framarar náðu aftur sjö marka forystu í síðari hálfleik og voru yfir 20–13 áður en HK hóf að saxa á forskotið. Gestirnir skoruðu níu mörk gegn þremur mörkum heimamanna og minnkuðu muninn í 23–22. Aftur munaði aðeins einu marki í stöðunni 24–23 og spennan því orðin töluverð. Heimamenn náðu hins vegar að halda forystunni og komust í 28–24. HK gafst ekki upp og Kári Tómas Haukssonminnkaði muninn í 29–27 þegar tvær og hálf mínúta var eftir. Haukur Ingi Hauksson og Max Emil Stenlund svöruðu með tveimur næstu mörkum og lögðu grunninn að fjögurra marka sigri Fram. Haukur Ingi og Ívar Logi Styrmisson voru markahæstir hjá Fram með sjö mörk hvor. Max Emil skoraði sex og Dagur Fannar Möller fjögur. Arnór Máni Daðason varði átta skot. Kári Tómas var markahæstur á vellinum með ellefu mörk fyrir HK. Gunnar Dan Hlynsson skoraði sex mörk og Trúgvi Hávarðsson fjögur. Brynjar Vignir Sigurjónsson varði tíu skot í marki gestanna.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.