Gísli Þorgeir næst besti leikmaður heims
SVEN SIMON /AFP

Gísli Þorgeir Kristjánsson leikmaður þýska stórliðsins SC Magdeburg og íslenska landsliðsins, hefur verið valinn næst besti handboltamaður heims af handboltamiðlinum Upskill Handball. Landsliðsfélagi hans, Ómar Ingi Magnússon, hafnaði í sjöunda sæti í kjörinu.

Verðlaunin nefnast The One og eru nú veitt í þriðja sinn. Daninn Mathias Gidsel leikmaður Füchse Berlin var valinn besti handboltamaður heims þriðja árið í röð og hlaut 254 stig í kjörinu.

Gísli Þorgeir hafnaði í öðru sæti með 136 stig en Portúgalinn Francisco Costa varð þriðji með 123 stig. Gísli Þorgeir hafði því 13 stiga forskot á Costa en Gidsel hafði nokkra yfirburði í efsta sætinu.

Ómar Ingi Magnússon, samherji Gísla Þorgeirs hjá Magdeburg, hafnaði í sjöunda sæti með 70 stig. Íslendingarnir tveir eru því báðir á meðal sjö bestu handboltamanna heims samkvæmt kjörinu.

Alls tóku 40 þjálfarar, 50 fjölmiðlamenn og um 30.000 handboltaáhugamenn þátt í valinu. Atkvæði þjálfara vega 40 prósent af heildarniðurstöðunni, atkvæði fjölmiðlamanna önnur 40 prósent og atkvæði handboltaáhugafólks 20 prósent.

Athygli vekur að Magdeburg á þrjá leikmenn á meðal sjö efstu í kjörinu en alls eru fimm leikmenn þýsku Bundesligunnar á topp tíu listanum. Auk Ómars Inga er Magnus Saugstrup leikmaður Magdeburg í 4.sæti. Domen Makuc leikmaður Kiel er í 5.sæti og Simon Pytlick leikmaður Flensburg er í 8.sæti.

Tíu bestu handboltamenn heims samkvæmt Upskill Handball

  1. Mathias Gidsel – hægri skytta – 254 stig
  2. Gísli Þorgeir Kristjánsson – miðjumaður – 136 stig
  3. Francisco Costa – hægri skytta – 123 stig
  4. Magnus Saugstrup – línumaður – 106 stig
  5. Domen Makuc – miðjumaður – 93 stig
  6. Luis Frade – línumaður – 82 stig
  7. Ómar Ingi Magnússon – hægri skytta – 70 stig
  8. Simon Pytlick – vinstri skytta – 55 stig
  9. Martim Costa – vinstri skytta – 50 stig
  10. Thomas Arnoldsen – miðjumaður – 31 stig

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top