Gummersbach sagt líklegast til að landa Wolff
SVEN SIMON / AFP

Þýski landsliðsmarkvörðurinn Andreas Wolff er sagður vera á förum frá þýska stórliðinu THW Kiel og samkvæmt þýska miðlinum Bild er VfL Gummersbach, sem Guðjón Valur Sigurðsson þjálfar, talið líklegast til að tryggja sér þjónustu markvarðarins.

Wolff, sem er 35 ára gamall, er samningsbundinn Kiel til sumarsins 2028 en samkvæmt Bild er nánast öruggt að hann muni ekki framlengja samning sinn við félagið. Þá er jafnvel talið mögulegt að hann yfirgefi Kiel strax næsta sumar, ári áður en samningur hans rennur út.

Fjögur félög hafa verið nefnd til sögunnar í tengslum við Wolff en auk Gummersbach eru það Füchse Berlin, Flensburg-Handewitt og TVB Stuttgart.

Christoph Schindler, framkvæmdastjóri Gummersbach, var spurður út í orðróminn í viðtali við Dyn á dögunum og útilokaði ekki að félagið hefði áhuga á markverðinum.

„Ef leikmenn með sömu gæði og Andi Wolff eru í boði og það er einhver raunhæfur möguleiki á að fá þá, þá væri ég ekki að sinna starfi mínu rétt ef við myndum ekki skoða það,“ sagði Schindler.

„Ég myndi ekki segja nei við því að sjá hann einhvern tímann í marki Gummersbach. Það myndu hin 17 liðin í þýsku úrvalsdeildinni líklega ekki gera heldur.“

Möguleg félagaskipti Wolff tengjast einnig framtíð spænska markvarðarins Ignacio Biosca, sem gekk til liðs við Gummersbach síðasta sumar. Biosca hefur verið orðaður við franska félagið Montpellier þrátt fyrir að vera samningsbundinn Gummersbach til ársins 2029.

Wolff lék með Kiel á árunum 2016 til 2019 áður en hann gekk til liðs við pólska stórliðið Kielce. Hann sneri síðan aftur til Kiel sumarið 2024.

Andreas Wolff er að mörgum talinn vera einn besti markvörður heims og hefur farið á kostum í treyju Þýskalands á síðustu stórmótum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top