Jakob Ingi Stefánsson, leikmaður ÍBV í Olís-deild karla, er farinn að sjá fyrir endann á langri endurhæfingu eftir að hafa slitið krossband á síðasta tímabili. Þetta staðfestir Bergvin Haraldsson, þjálfari ÍBV, í samtali við Handkastið en Jakob Ingi hefur verið frá keppni um langt skeið vegna meiðslanna. Að sögn Bergvins er Jakob Ingi byrjaður að koma sér af stað á ný og styttist í að hann geti snúið aftur á handboltavöllinn. Endurkoma Jakobs Inga yrði kærkomin fyrir Eyjamenn sem hafa glímt við mikil meiðslavandræði á tímabilinu og þurft að vera án fjölmargra leikmanna. Ekki liggur fyrir nákvæmlega hvenær Jakob Ingi verður klár í slaginn en tíðindin eru jákvæð fyrir ÍBV sem hefur verið að rétta úr kútnum að undanförnu undir stjórn Bergvins Haraldssonar. Fyrir tímabilið var gert ráð fyrir að Jakob Ingi myndi snúa aftur eftir áramót en nú er spurning hvort endurkoma Jakobs Inga verði fyrr en áætlað var. ÍBV er með 10 stig að loknum níu leikjum í 6.sæti Olís-deildarinnar en liðið heimsækir Aftureldingu heim í 10.umferðinni, sem fer fram fimmtudaginn 12.nóvember.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.