Snorri segir Reyni Þór vera að minna á sig
Sævar Jónasson

Snorri Steinn Guðjónsson segir Reyni Þór Stefánsson koma sterklega til greina í landsliðshópinn fyrir HM í Þýskalandi í janúar. Landsliðsþjálfarinn hrósaði innkomu Reynis Þórs í 22 marka sigrinum á Úkraínu á miðvikudag og sagði Þorstein Leó Gunnarsson búa yfir eiginleikum sem gætu nýst liðinu vel á stórmóti.

„Hann er að minna á sig. Það er klárlega samkeppni í þessum stöðum sem hann spilar og við erum virkilega vel settir hvað það varðar,“ sagði Snorri Steinn um Reyni Þór í samtali við Handkastið.

„Hann nýtti tímann vel og hefur svo sem líka bara verið að gera vel í sínu liði.“

Rætt var um frammistöðu Reynis í nýjasta uppgjörsþætti Handkastins.

Snorri Steinn sagði enn margt geta gerst áður en lokahópurinn verður valinn. Spurður um hvernig Þorsteinn Leó félli að leikstíl landsliðsins benti hann á að það væri líka hans hlutverk sem þjálfara að finna leiðir til að nýta styrkleika leikmannsins.

„Steini hefur klárlega einhvern X-faktor sem enginn annar í þessu liði hefur og það er eitthvað sem klárlega vinnur með honum,“ sagði Snorri Steinn. Hann vill hafa úr fleiri vopnum að moða þegar hann velur 18 manna hóp fyrir stórmót. Þorsteinn Leó glímir nú við meiðsli.

Snorri Steinn hrósaði leikmönnum sínum fyrir frammistöðuna gegn Úkraínu. Hann hefur frá því hann tók við landsliðinu lagt áherslu á að liðið sýni stöðugleika í undankeppni jafnt sem á stórmótum.

„Ef við ætlum okkur einhverja hluti á stórmótum og viljum máta okkur við þessi lið sem hafa verið að vinna medalíur, þá þurfum við líka bara að gjöra svo vel að sýna það, ekki bara á stórmóti.“

Næst mætir Ísland Eistlandi á útivelli á sunnudag. Snorri Steinn segir að ferðalagið og útivöllurinn geri leikinn að öðru verkefni en leikurinn fyrir fullri Laugardalshöll á miðvikudag.

„Það er náttúrulega mjög hættulegt að reikna með einhverjum auðveldum leik og ég nálgast þetta ekki þannig. Við undirbúum okkur bara vel og reiknum með erfiðum leik.“

Leikur Eistlands og Íslands hefst klukkan 16 á sunnudag.

Einar Þorsteinn verður ekki með gegn Eistlandi

Lengra og ítarlegra viðtal við Snorra Stein má sjá hér að neðan.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top