48 mörk og nýtt íslenskt met í undankeppni EM
Sævar Jónasson

Íslenska karlalandsliðið í handbolta setti nýtt markamet í undankeppni Evrópumóts þegar liðið vann stórsigur á Úkraínu, 48–26, í Laugardalshöll í gærkvöldi. Aldrei áður hefur íslenska landsliðið skorað jafn mörg mörk í einum leik í undankeppni EM.

Fyrra metið var frá árinu 2011 þegar Ísland skoraði 44 mörk í 44–29 sigri á Austurríki í júní það ár. Metið hafði því staðið í rúm 15 ár áður en íslenska liðið bætti það um fjögur mörk í gærkvöldi.

Íslendingar sýndu yfirburði frá fyrstu mínútum leiksins og voru komnir með tíu marka forskot, 14–4, áður en 17 mínútur voru liðnar. Staðan í hálfleik var 23–9 og því ljóst að íslenska liðið stefndi í afar markamikinn leik.

Í síðari hálfleik hélt íslenska liðið áfram að bæta við forskotið og þegar upp var staðið höfðu Íslendingar skorað 48 mörk og unnið 22 marka sigur.

Bjarki Már Elísson, Ómar Ingi Magnússon og Reynir Þór Stefánsson voru markahæstir íslenska liðsins með sex mörk hver.

Sigurinn var jafnframt sá stærsti af þeim átta leikjum sem fóru fram á opnunarkvöldi undankeppninnar. Þrátt fyrir 22 marka sigur var þetta þó ekki stærsti sigur Íslands í sögu undankeppni EM. Það met stendur enn frá árinu 1999 þegar Ísland vann Kýpur 42–11, eða með 31 marks mun.

Ísland var ekki eina þjóðin sem bætti markamet sitt í gærkvöldi því bæði Króatía og Færeyjar settu einnig ný markamet í undankeppni EM.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top