Franska stórliðið Paris Saint-Germain hefur framlengt samning sinn við spænska hornamanninn Ferran Solé til sumarsins 2029. Félagið greindi frá tíðindunum á heimasíðu sinni í dag. Solé, sem er 34 ára gamall, hefur leikið með PSG frá sumrinu 2020 þegar hann gekk til liðs við félagið frá Toulouse. Áður hafði hann leikið með Granollers á Spáni. Spánverjinn hefur verið lykilmaður í liði PSG undanfarin ár og náði tveimur stórum áföngum á síðustu vikum. Í október lék hann sinn 300. leik fyrir félagið og um síðustu helgi skoraði hann sitt 1.000. mark í búningi PSG þegar liðið mætti Montpellier í frönsku úrvalsdeildinni. Thierry Omeyer, framkvæmdastjóri PSG og fyrrverandi landsliðsmarkvörður Frakka, lýsti yfir mikilli ánægju með að hafa tryggt áframhaldandi þjónustu Spánverjans. „Við erum mjög ánægðir með að halda Ferran hjá félaginu næstu árin. Frá því hann kom hefur hann sýnt mikla fagmennsku og stöðugleika. Reynsla hans, gæði og skuldbinding við félagið eru mikilvæg fyrir okkur,“ sagði Omeyer. Solé sjálfur segist sömuleiðis ánægður með að halda áfram í París. „Ég er mjög ánægður með að framlengja samning minn við Paris Saint-Germain til ársins 2029. Ég hef klæðst þessari treyju í mörg ár og finn fyrir sterkum tengslum við félagið. Ég er stoltur af því að halda þessari vegferð áfram með liðsfélögum mínum.“ Solé varð Evrópumeistari með spænska landsliðinu árið 2018 og hefur um árabil verið einn af öflugustu hægri hornamönnum Evrópu. PSG hefur unnið franska meistaratitilinn tólf ár í röð en félagið hefur enn ekki tekist að vinna Meistaradeild Evrópu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.