Rekinn eftir aðeins ellefu leiki
Tom Weller /AFP

Þýska úrvalsdeildarfélagið SG BBM Bietigheim hefur sagt Hartmut Mayerhoffer upp störfum sem þjálfara félagsins eftir aðeins ellefu leiki á tímabilinu.

Bietigheim, sem er nýliði í þýsku Bundesligunni, hefur átt erfitt uppdráttar á tímabilinu og situr í næstneðsta sæti deildarinnar með aðeins fjögur stig eftir ellefu umferðir.

Það vekur hins vegar athygli að forráðamenn félagsins segja að slakur árangur liðsins hafi ekki verið meginástæða þess að Mayerhoffer var látinn taka pokann sinn.

„Þessi ákvörðun tengist síður stigafjölda okkar og stöðu í fallbaráttunni. Við höfum komist að þeirri niðurstöðu að hugmyndir okkar um samstarfið fari ekki lengur nægilega vel saman,“ sagði Bastian Spahlinger, framkvæmdastjóri félagsins, í tilkynningu.

Mayerhoffer tók við Bietigheim fyrir yfirstandandi tímabil en hann hafði áður stýrt liðinu á árunum 2013 til 2018 og komið því tvívegis upp um deild.

Bietigheim hefur aðeins unnið tvo leiki í þýsku úrvalsdeildinni á tímabilinu, meðal annars óvæntan útisigur gegn Göppingen. Þá féll liðið úr þýsku bikarkeppninni gegn Minden, sem leikur í næstefstu deild.

Manuel Schmidt, sem hefur verið aðstoðarþjálfari liðsins, tekur tímabundið við þjálfun þess á meðan félagið leitar að varanlegri lausn.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top