Þýska handboltagoðsögnin Martin Schwalb hefur greint opinberlega frá því að hann hafi greinst með krabbamein í blöðruhálskirtli. Schwalb, sem er 63 ára gamall, gekkst undir aðgerð fyrir rúmum þremur vikum en segist nú vera á batavegi. Síðast þjálfaði hann HC Erlangen í þýsku Bundesligunni en lét af störfum í febrúar 2025. Með liðinu leika Viggó Kristjánsson og Andri Már Rúnarsson. Schwalb greindist með sjúkdóminn sumarið 2025 eftir reglubundnar blóðrannsóknir og frekari skoðanir. Hann gekkst síðan undir aðgerð á Martini-sjúkrahúsinu í Hamborg þar sem blöðruhálskirtillinn var fjarlægður. Samkvæmt Schwalb er ekki þörf á lyfjameðferð eða geislameðferð eins og staðan er í dag. „Þetta var auðvitað mikið áfall. Ég er enn að jafna mig eftir aðgerðina en mér líður vel,“ sagði Schwalb í samtali við þýska handboltamiðilinn handball-world. Schwalb segist hafa ákveðið að ræða veikindi sín opinberlega til að vekja athygli á mikilvægi reglubundinna heilsufarsskoðana hjá körlum og því að hægt sé að greina sjúkdóminn snemma. Þrátt fyrir veikindin hefur Schwalb ekki sagt sitt síðasta sem handboltaþjálfari. Hann segist enn fá fyrirspurnir frá félögum bæði innan Þýskalands og utan og útilokar ekki að snúa aftur á hliðarlínuna. „Ég er enn á fullu í handboltanum. Þetta er íþróttin sem ég hef helgað líf mitt og ég elska hana óendanlega mikið,“ sagði Schwalb. Hann hefur meðal annars áhuga á að taka við landsliði ef rétta tækifærið býðst. Þá hefur hann einnig velt fyrir sér að miðla reynslu sinni til annarra þjálfara í hlutverki ráðgjafa. Schwalb á glæsilegan feril að baki, bæði sem leikmaður og þjálfari. Hann gerði HSV Hamburg að þýskum meisturum árið 2011 og stýrði liðinu til sigurs í Meistaradeild Evrópu árið 2013. Þá þjálfaði hann Rhein Neckar Lowen frá 2000-2001.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.