Niclas Kirkeløkke missti af leik Danmerkur og Spánar í EHF EURO Cup í gærkvöldi eftir að hafa fengið boltann í höfuðið á æfingu. Danir voru aðeins með 15 leikmenn til taks í Herning þar sem þeir skoruðu tvö síðustu mörkin og náðu 28-28 jafntefli. Nikolaj Jacobsen, landsliðsþjálfari Dana, sagði að Kirkeløkke hefði fengið boltann í höfuðið á mánudagsæfingu liðsins og ekki jafnað sig nægilega vel fyrir leikinn. Kirkeløkke hafði einnig verið frá um tíma í aðdraganda landsliðsverkefnisins og því vildi Jacobsen fara varlega. Steven Plucnar hafði þegar verið skráður utan leikmannahópsins og samkvæmt reglunum var of seint að færa hann aftur inn á leikskýrsluna. Danir gátu því ekki fyllt skarðið. Danir voru 16-13 yfir í hálfleik en Spánverjar sneru leiknum sér í vil eftir hlé og komust í 28-26 undir lokin. Heimamenn skoruðu hins vegar tvö síðustu mörkin og tryggðu sér jafntefli fyrir framan rúmlega tíu þúsund áhorfendur í Jyske Bank Boxen. Mathias Gidsel var markahæstur Dana með níu mörk úr ellefu skotum og Simon Pytlick bætti við sjö. Emil Nielsenvarði 14 skot í danska markinu. Petar Cikuša var markahæstur Spánverja með sex mörk.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.