Guðjón Guðmundsson, Gaupi, gagnrýndi líkamlegt ástand leikmanna í Olís-deild kvenna í nýjasta þætti Handkastsins. Þar var fjallað um íslenska kvennalandsliðið sem tekur þátt í Evrópumótinu í byrjun desember. Gaupi sagði áhyggjur Arnars Péturssonar landsliðsþjálfara af líkamlega þættinum eiga rétt á sér og kallaði eftir breytingum. „Arnar Pétursson hefur áhyggjur af líkamlega þættinum og mér finnst líkamlegi þátturinn í Olís-deild kvenna á köflum hörmung. Maður sér það á löngum köflum að sum liðin eru bara ekki í standi og sumir leikmenn í engu standi. Þetta þarf að breytast og það er algjörlega klárt.“ Gaupi telur jafnframt mikilvægt að fleiri íslenskir leikmenn taki skrefið í atvinnumennsku erlendis svo landsliðið geti komist lengra. „Síðan þurfum við að fá fleiri leikmenn í erlend félagslið og við erum að auka þá breidd. Þær eru að verða fleiri núna sem skiptir miklu máli. Við þurfum fleiri atvinnumenn til að fara tröppu ofar í stiganum,“ sagði Gaupi. Átta af sautján leikmönnum í EM-hópi Íslands leika með erlendum félagsliðum. Fimm þeirra fóru út í atvinnumennsku í sumar og hefur því orðið töluverð breyting á samsetningu hópsins hvað það varðar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.