Haukur Þrastarson, landsliðsmaður og leikmaður Rhein-Neckar Löwen í þýsku úrvalsdeildinni, vildi lítið tjá sig um framtíð sína hjá félaginu þegar Handkastið ræddi við hann í Safamýri þar sem íslenska landsliðið kom saman til æfinga í gær. Handkastið greindi frá því í gær að bæði Kiel og Gummersbach hefðu sýnt Hauki áhuga en mikil óvissa hefur verið í kringum Rhein-Neckar Löwen eftir erfiða byrjun á tímabilinu og þjálfaraskipti hjá félaginu. Haukur er samningsbundinn Rhein-Neckar Löwen til sumarsins 2028 og segir að allur hans fókus sé á að koma liðinu aftur á sigurbraut. „Nei, ekki annað en það að ég er samningsbundinn Rhein-Neckar Löwen til ársins 2028 og auðvitað hefur spilamennskan hingað til ekki verið nægilega góð og úrslitin ekki verið að detta með okkur. Þjálfarabreytingar og mikið verið í gangi sem er eðlilegur hluti í þessu þegar úrslitin hafa ekki verið að detta.“ „Það er ekkert annað sem kemst að hjá mér núna en að snúa genginu við,“ sagði Haukur í samtali við Handkastið. Í erlendum fjölmiðlum hefur verið fjallað um að sérstakt ákvæði kunni að vera í samningi Hauks sem tengist þjálfaraskiptum hjá Rhein-Neckar Löwen. Haukur vildi hins vegar ekkert gefa upp um innihald samningsins þegar Handkastið spurði hann út í málið. „Ég er ekki að fara að tala um það hvað sé inni í mínum samningi. Eins og ég sagði áðan þá er fókusinn hjá mér og ekkert annað sem kemst að varðandi Löwen en að snúa genginu við og reyna að ná í úrslit og bæta spilamennskuna.“ „Eins og staðan er núna þá kemst ekkert annað að hjá mér.“ Elvar Örn Jónsson gengur til liðs við Rhein-Neckar Löwen frá Magdeburg næsta sumar og Haukur segir komu hans mikil og jákvæð tíðindi fyrir félagið. „Elvar er leikmaður sem mun koma og hjálpa þessu liði mjög mikið, ég held að það sé engin spurning. Það er frábært fyrir okkur að fá leikmann á þessu kaliberi.“ „Það er jákvætt og maður bíður spenntur eftir því að hann komi og bæti því við liðið sem hann mun gera. Það verður flott.“ Haukur var einnig spurður sérstaklega út í áhuga Kiel og Gummersbach, sem Handkastið greindi frá í gær, en hann vildi ekki fara nánar út í þau mál. „Eins og ég sagði áðan, þá kemst ekkert að núna hjá mér. Allur fókus er að bæta frammistöðuna og ná í úrslit og allt annað hvað varðar mig og mín mál er alls ekki aðalatriðið. Hvað ég geri og mun gera í framtíðinni verður bara að koma í ljós.“ Haukur hefur þrátt fyrir erfitt gengi Rhein-Neckar Löwen fulla trú á því að liðið geti snúið blaðinu við á næstu vikum. „Númer eitt, tvö og þrjú er að fara að ná í úrslit. Við höfum verið stutt frá því og það er stutt á milli. Við höfum verið að missa niður leiki sem við höfum verið í góðri stöðu. Ég hef fulla trú á að við náum að bæta úr því,“ sagði Haukur Þrastarson að lokum í samtali við Handkastið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.