Róbert Sigurðarson, leikmaður ÍBV í Olís-deild karla, er byrjaður að æfa á ný eftir að hafa verið frá keppni frá því í ágúst vegna heilahristings. Róbert hefur ekkert leikið með Eyjamönnum á tímabilinu en er nú hægt og rólega að vinna sig til baka. Þetta staðfestir Bergvin Haraldsson, þjálfari ÍBV, í samtali við Handkastið þegar hann fór yfir stöðuna á leikmannahópi sínum en mikil meiðsli hafa herjað á Eyjamenn á fyrstu mánuðum tímabilsins. Róbert varð fyrir þungu höfuðhöggi í æfingaferð ÍBV í ágúst í Hollandi og hlaut heilahristing. Hann hefur verið frá æfingum og keppni síðan en hefur nú náð að æfa síðustu tvær vikurnar. Að sögn Bergvins hefur félagið farið varlega af stað með Róbert og ekki viljað taka neina áhættu með endurkomu hans á völlinn. Það eru því jákvæð tíðindi fyrir Eyjamenn að Róbert sé farinn að æfa á ný eftir langa fjarveru, þótt ekki liggi fyrir nákvæmlega hvenær hann verður tilbúinn í leik með liðinu. ÍBV er þrátt fyrir meiðslavandræði og þjálfarabreytingar í 6.sæti deildarinnar með 10 stig að loknum níu umferðum en liðið vann Víking og Stjörnuna á dögunum þrátt fyrir að vera án lykilmanna.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.