Óvíst hvað Birna Berg er lengi frá
Sævar Jónasson

Birna Berg Haraldsdóttir, hægri skytta ÍBV í Olís-deild kvenna glímir við meiðsli og óvíst er hversu lengi hún verður frá keppni. Birna Berg lék ekki með ÍBV í tveggja marka sigri liðsins gegn Gróttu um helgina.

Hilmar Ágúst Björnsson, aðstoðarþjálfari ÍBV, staðfesti í samtali við Handkastið að Birna Berg væri með talsvert mikið beinmar á neðanverðum lærlegg að utanverðu eftir að hafa meiðst á æfingu liðsins.

„Hún er í hliðarskrefum á miðri æfingu og fær slink á hnéð án snertingar,“ sagði Hilmar um atvikið. Upphaflega óttuðust Eyjamenn að um alvarleg meiðsli væri að ræða en niðurstöður myndatöku reyndust betri en fyrstu grunsemdir gáfu tilefni til.

„Við héldum það versta en það kom gott út úr myndatökunni og staðfest að þetta sé beinmar,“ sagði Hilmar. Enn ríkir töluverð óvissa um hversu lengi Birna Berg verður frá keppni og segir Hilmar að misjafnar upplýsingar hafi komið fram um mögulegan batatíma.

„Ég stórlega efast um að hún nái þessum Stjörnuleik. Búinn að heyra allt frá tveimur vikum upp í þrjá mánuði,“ sagði Hilmar að lokum.

ÍBV tekur á móti botnliði Stjörnunnar í næstu umferð Olís-deildar kvenna og miðað við orð Hilmars er ólíklegt að Birna Berg verði með í þeim leik. Fjarvera Birnu Berg er áfall fyrir Eyjaliðið enda hefur hún verið mikilvægur hlekkur í sóknarleik liðsins á tímabilinu.

Birna Berg er þriðji markahæsti leikmaður ÍBV í Olís-deildinni með 31 mark í sex leikjum, eða rúmlega fimm mörk að meðaltali í leik.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top