Stymmi spáir í spilin: 8. umferð Olísdeildar kvenna

Stymmi Klippari mun í allan vetur spá í spilin og tippa á hvernig komandi umferð mun fara í Olís deildum karla og kvenna.

Hér að neðan má sjá hvernig hann telur að 8.umferð fari í Olís deild kvenna.

Haukar – Grótta (Þriðjudagur 19:30)  /  Sigurvegari: Haukar

Leikur snemma í vikunni sökum Evrópu verkefnis hjá Haukum. Stutt á milli leikja hjá Gróttu sem mættu ÍBV síðasta laugardag. Það er stígandi í leik Gróttu liðsins en Haukarnir hafa verið allt önnur skepna í vetur og Grótta verður því engin fyrirstaða fyrir þær í kvöld.

ÍR – Fram (Föstudagur 19:30)  /  Sigurvegari: Fram

Fram hafa tapað þrem leikjum í röð sem er ekki vaninn á þeim bænum. ÍR náði einungis jafntefli gegn Selfoss í síðustu umferð og horfa eflaust á það sem tapað stig í excel skjalinu hjá sér. Ég held að þetta verði leikurinn sem kemur Fram aftur á sigurbraut. Þær skella sér í Breiðholtið á föstudagskvöldið og koma heim í Úlfarsárdalinn með 2 punkta.

ÍBV – Stjarnan (Laugardagur 14:00)  /  Sigurvegari: ÍBV

ÍBV vann góðan sigur á Gróttu um síðustu helgi eftir erfiðan fyrri hálfleik hjá þeim. Verður Birna Berg með? Það hefur lítið gengið hjá Stjörnunni undanfarið og orðið talsvert frá því þær fögnuðu sigri síðast. Því miður fyrir þær hvort sem Birna Berg verður með ÍBV eða ekki í þessum leik þá munu heimakonur fagna sigri á laugardaginn.

Selfoss –  KA/Þór (Laugardagur 15:00)  /  Sigurvegari: Selfoss

KA/Þór verið á miklu flugi undanfarið og búnar að vinna 2 leiki í röð. Selfoss náði einnig í sterkt stig gegn ÍR í síðustu umferð. Gífurlega mikilvægur leikur í fallbaráttunni eins og í hverri einustu umferð í þessari deild. Selfoss mun nýta sér heimavöllinn í þessu einvígi og fara með sigur af hólmi.

Valur – HK (Laugardagur 15:00)  /  Sigurvegari: Valur Valur verið að endurheimta vopnin sín og verða sterkari með hverjum leiknum. HK voru klaufar í síðasta leik bæði innan vallar og utan. Vonandi verður skýrslan allavegna rétt í þetta sinn. En hvort sem hún verður rétt eða ekki þá mun það ekki koma að sök, Valskonur munu fara með sigur af hólmi

1.umferð (4 réttir)
2.umferð (4 réttir)
3. umferð (4 réttir)
4.umferð (5 réttir)
5.umferð (3 réttir)
6.umferðir (4 réttir)
7. umferðir (4 réttir)

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top