Stymmi Klippari mun í allan vetur spá í spilin og tippa á hvernig komandi umferð mun fara í Olís deildum karla og kvenna. Hér að neðan má sjá hvernig hann telur að 3.umferð fari í Olís deild kvenna. Fram – HK (Laugardagur 13:00) / Sigurvegari: Fram Fram hafa byrjað tímabilið virkilega vel og eru með fullt hús á toppi deildinnar. HK eru ennþá stigalausar og verða að treysta á betri leik frá Valgerði en gegn ÍR til að eiga séns í dag. Fram eru bara með það mikið sterkari hóp en HK að ég held við munum ekki sjá neitt óvænt hérna í dag og Fram vinni þetta þægilega. Grótta – Stjarnan (Laugardagur 13:30) / Sigurvegari: Grótta Þessi lið áttu í hörku einvígi um sæti í Olís deildinni í vor sem endaði þó að bæði lið eru meðal keppanda í ár. Grótta unnu góðan sigur á Selfoss í síðasta leik meðan Stjarnan eru ennþá í leit af fyrsta sigrinum. Því miður fyrir þær verður biðin lengri þar sem ég tel að Grótta séu á betri stað í dag og vinni í hörkuleik á Nesinu. ÍBV – Selfoss (Laugardagur 14:00) / Sigurvegari: ÍBV ÍBV eru eflaust svekktar með spilamennskuna í síðasta leik gegn Val þar sem þær mættu einfaldlega ekki nógu sterkar til leiks. Selfoss vann Val óvænt en eru eflaust svekktar að hafa ekki fengið stig úr leiknum gegn Gróttu á heimavelli. ÍBV mun ekki eiga tvo lélega leiki í röð og vinna nágranna sína á Suðurlandinu þægilega í Eyjum. ÍR– KA/Þór (Laugardagur 15:00) / Sigurvegari: ÍR ÍR hefur byrjað tímabilið á tveim sigrum þó þeir hafi verið allt annað en öruggir meðan KA/Þór hefur byrjað á leikjum gegn liðunum sem spáð var efstu tveim sætunum. Ég veit betur en spá gegn ÍR svo ég held að ÍR haldi uppteknum hætti og vinni KA/Þór í Skógarselinu í dag með tveggja marka mun. Haukar – Valur (Sunnudagur 18:00) / Sigurvegari: Haukar Stórleikur umferðarinnar en þessi lið mættust í Meistarar Meistaranna á dögunum þar sem Haukar unnu örugglega. Valskonur hafa endurheimt leikmenn síðan í þeim leik svo ég tel að mótspyrnan verði töluvert meiri í dag en hún var þá. Haukar eru samt heitasta lið deildinnar á þessum tímapunkti og heimavöllurinn mun hjálpa þeim mikið þegar þær vinna Valskonur í annað sinn á stuttum tíma.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.