Stymmi Klippari mun í allan vetur spá í spilin og tippa á hvernig komandi umferð mun fara í Olís deildum karla og kvenna. Hér að neðan má sjá hvernig hann telur að 2.umferð fari í Olís deild kvenna. Stjarnan – Fram (Föstudagur 18:00) / Sigurvegari: Fram Stjarnan voru seinar í gang hjá ÍR um síðustu helgi og þurfa að byrja leikinn frá fyrstu mínútu ef þær ætla að eiga mögulega gegn Fram í kvöld. Það er spurning hvort Lena Margrét verði komin með leikheimild fyrir þennan leik en hvort sem það verður eða ekki þá tel ég að þetta verði þægilegur Fram sigur þrátt fyrir að þær áttu í vandræðum með Stjörnuna á síðustu leiktíð. Selfoss – Grótta (Föstudagur 18:00) / Sigurvegari: Grótta Spútnik lið deildinnar sem unnu Val örugglega í fyrstu umferð frá nýliða Gróttu til sín í heimsókn. Núna verða allra augu á Selfyssingum í þessum leik og nýja brumið farið af liðinu. Ég held að Grótta komi þeim niður á jörðina og vinni óvæntan sigur með Andreu í banastuði í markinu. HK – ÍR (Laugardagur 16:00) / Sigurvegari: ÍR HK sýndu fína takta gegn Haukum um síðustu helgi meðan ÍR náði að sigla sigri gegn Stjörnunni í hús. HK mun verða meira inn í þessum leik en gegn Haukum en ég held að ÍR vinni að lokum og verði með fullt hús stiga. KA/Þór – Haukar (Laugardagur 17:00) / Sigurvegari: Haukar KA/Þór sýndi fína frammistöðu í Vestmannaeyjum um síðustu helgi þar sem þær töpuðu meðan Haukar fór þægilega í gegnum HK. Munurinn á þessum hópum er talsverður á þessu stigi tímabilsins og Haukarnir fara norður og vinna þægilega og Jóhanna Margrét mun halda uppteknum hætti í markaskorun og sýna landsliðsþjálfaranum að hann valdi rangt í æfingarhópinn. Valur – ÍBV (Sunnudagur 18:00) / Sigurvegari: ÍBV Valur tapaði óvænt gegn Selfoss í fyrstu umferð og fá nú deildarmeistaraefni ÍBV í heimsókn. ÍBV mun vinna þennan leik þægilega og við munum sjá sjón sem við sjáum ekki oft í kvennaboltanum að Valskonur verði stigalausar á botni deildinnar eftir tvær umferðir.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.