Góðar fréttir bárust af Hákoni Daða Styrmissyni, leikmanni Aftureldingar, en nú hefur verið staðfest að hann sleit ekki krossband í hné eins og óttast var eftir meiðsli hans í leik gegn KA í Olís-deild karla í síðustu viku. Hákon Daði meiddist á hné undir lok fyrri hálfleiks í leik KA og Aftureldingar á Akureyri og gat ekki haldið leik áfram. Miklar áhyggjur voru af því að um alvarleg krossbandsslit væri að ræða en niðurstöður myndatöku, sem hann fór í í byrjun vikunnar, leiddu annað í ljós. Hrannar Guðmundsson, þjálfari Aftureldingar, staðfesti í samtali við Handkastið að krossbandið hefði haldið en að Hákon Daði hefði hins vegar orðið fyrir liðþófaskaða. „Krossbandið hélt en liðþófinn ekki. Gert er ráð fyrir að hann verði frá í þrjá mánuði og komi því sterkur inn aftur þegar Olís-deildin hefst á nýjan leik í febrúar,“ sagði Hrannar í samtali við Handkastið. Þrátt fyrir að Hákon Daði verði frá keppni næstu mánuðina eru þetta mikil gleðitíðindi fyrir Mosfellinga, enda hefði krossbandsslit að öllum líkindum þýtt mun lengri fjarveru. Hákon Daði gekk til liðs við Aftureldingu í sumar og hefur verið einn af lykilmönnum liðsins á tímabilinu. Hann er markahæsti leikmaður Aftureldingar í Olís-deildinni með 56 mörk. Hann var ekki í leikmannahópi Aftureldingar í gær þegar Mosfellingar lögðu Þór að velli, 38-34, í áttundu umferð deildarinnar. Afturelding situr í þriðja sæti Olís-deildarinnar að loknum átta leikjum og verður því án síns markahæsta leikmanns fram að keppnishléi. Gangi endurhæfingin samkvæmt áætlun ætti Hákon Daði að geta snúið aftur á völlinn þegar deildarkeppnin hefst á nýjan leik í febrúar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.