Línumaðurinn Sigurður Páll Matthíasson hefur vakið mikla athygli í Olís deild karla í vetur. Hann hefur skorað 54 mörk í 7 leikjum fyrir Víkinga og er markahæstur í liði þeirra. Þessi 54 mörk setja hann í 7. sæti á lista yfir markahæstu leikmenn deildarinnar. Sigurður Páll gerðist ekki línumaður fyrr en hann gekk upp í 3. flokk. Fram að því var hann alltaf leikstjórnandi í yngri flokkum. Einkar útsjónarsamur með mikinn leikskilning sem hefur hjálpað honum mikið þegar hann færði sig inn á línuna. Sigurður Páll hefur verið í landsliðshóp U-20 ára landsliðsins og nú í september síðastliðnum var hann síðan valinn í 21 manna Elítuhóp HSÍ sem Snorri Steinn Guðjónsson A-landsliðsþjálfari valdi. Svo sannarlega framtíðarmaður og verður gaman að sjá hvernig næstu ár þróast hjá honum. Handkastið heyrði aðeins í Sigurði Páli og fengum hann til að tjá sig um byrjunina á tímabilinu og það sem framundan er. "Byrjunin á tímabilinu hefur verið bara fín þrátt fyrir að við hefðum viljað vera komnir með fleiri stig. Erum með svolítið mikið breytt lið frá því í fyrra og fengum virkileg góðrar styrkingar fyrir tímabilið og þeir leikmenn hafa komið mjög vel inn í hópinn þannig við eigum bara eftir að verða betri eftir því sem líður á tímabilið" "Við gerum miklar kröfur á okkur sjálfa og stefnum að sjálfsögðu á að byrja að halda okkur uppi en halda áfram stigasöfnuninni og sjá hvar það skilar okkur í töflunni" "Ég hef verið mjög ánægður með hvernig sjálfum mér hefur gengið í byrjun tímabilsins sérstaklega sóknarlega. Finnst ég eiga töluvert inni varnarlega þannig ég stefni að bæta mig þar eftir því sem líður á tímabilið" Það stóð svo ekki á svörum hjá Sigurði þegar hann var spurður út í hvert hann stefnir í nánustu framtíð.
"Maður stefnir mjög hátt í þessu. Stefni á að gera allt í mínu valdi til þess að gera Víking aftur af stórveldinu sem það var í handbolta. Svo langar mig að sjálfsögðu að spila einhvers staðar úti" sagði þessi öflugi línumaður að lokum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.