Alfreð missir lykilmann í meiðsli
Andreas Gora / dpa Picture-Alliance via AFP)

Alfreð Gíslason, landsliðsþjálfari Þýskalands hefur orðið fyrir áfalli í aðdraganda fyrstu leikja þýska landsliðsins í undankeppni Evrópumótsins en Nils Lichtlein, leikstjórnandi Füchse Berlin, hefur meiðst á öxl og verður frá keppni næstu vikurnar.

Lichtlein, sem er 24 ára gamall, hafði nýlega snúið aftur á völlinn eftir langvarandi meiðsli sem héldu honum frá keppni í upphafi tímabilsins. Nú hefur hann hins vegar orðið fyrir nýju áfalli eftir að hafa meiðst á vinstri öxl í leik gegn Flensburg.

Samkvæmt tilkynningu Füchse Berlin er gert ráð fyrir að Lichtlein verði frá keppni fram í miðjan desember. Nánari rannsóknir leiddu þó í ljós að ekki væri þörf á aðgerð og verður því reynt að meðhöndla meiðslin án aðgerðar. Meiðslin þýða að Lichtlein missir af landsleikjum Þýskalands gegn Belgíu 5. nóvember og Slóvakíu 8. nóvember í undankeppni Evrópumótsins.

Það sem vekur sérstaka athygli er að Alfreð Gíslason hefur ákveðið að kalla ekki inn nýjan leikmann í stað Lichtlein, að minnsta kosti ekki að svo stöddu.

Þýska landsliðið mun því mæta til komandi landsliðsverkefnis með aðeins 17 leikmenn í hópnum. Það þýðir að meiri ábyrgð verður sett í hendurnar á Juri Knorr, leikmanni Álaborgar.

Þrátt fyrir meiðslin eru enn vonir bundnar við að Lichtlein verði klár í slaginn þegar heimsmeistaramótið hefst í Þýskalandi í janúar. Lichtlein sjálfur kveðst fyrst og fremst feginn því að sleppa við aðgerð.

„Ég er fyrst og fremst ánægður með að það þurfi ekki að framkvæma aðgerð. Auðvitað er ekki skemmtilegt að hafa glímt við nokkur meiðsli á þessu ári en þetta hefði getað farið verr. Ég mun gera allt sem ég get til að koma til baka eins fljótt og mögulegt er,“ sagði Lichtlein. Heimsmeistaramótið hefst 13. janúar og verður haldið í Þýskalandi.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top