Kay Smits missir af landsleikjum Hollands vegna meiðsla
Michael Hundt / AFP

Hollenska landsliðið verður án örvhentu skyttunnar Kay Smits í komandi landsleikjaglugga þegar liðið mætir Finnlandi og Litháen í undankeppni Evrópumótsins.

Smits, sem leikur með þýska úrvalsdeildarliðinu VfL Gummersbach, glímir við bakmeiðsli sem hann varð fyrir í leik með félagsliði sínu á dögunum. Meiðslin eru ekki talin alvarleg en ákveðið hefur verið að taka enga áhættu og gefa Smits frí frá komandi landsliðsverkefni svo hann geti náð sér að fullu.

Mark Bult, landsliðsþjálfari Hollands, hefur kallað Marek Skwarczynski inn í landsliðshópinn í stað Smits.

Holland hefur leik í undankeppni EM fimmtudaginn 5. nóvember þegar liðið tekur á móti Finnlandi í Den Bosch. Þremur dögum síðar, sunnudaginn 8. nóvember, heimsækja Hollendingar Litháen í öðrum leik sínum í undankeppninni.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top