Gefur Selfyssingum tvo leiki til að bjarga sér
HSB PHOTO

Áhugaverður fallbaráttuslagur fer fram á Selfossi í kvöld þegar Selfoss tekur á móti Fram í 8. umferð Olís-deildar karla. Bæði lið hafa átt erfitt uppdráttar á tímabilinu og ljóst að mikið er undir í viðureigninni.

Leikurinn var til umræðu í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins þar sem hitað var upp fyrir 8. umferð deildarinnar. Selfoss situr á botni Olís-deildarinnar með aðeins eitt stig eftir fyrstu sjö umferðirnar á meðan Fram er í 11. sæti með fjögur stig, jafn mörg og HK og Víkingur.

Sérfræðingurinn telur að næstu tveir leikir Selfyssinga geti skipt sköpum fyrir framhaldið hjá liðinu en eftir viðureignina gegn Fram mætir Selfoss HK.

„Það verður gríðarlega áhugaverður leikur á Selfossi þar sem tvö lið í miklum vandræðum mætast, Selfoss og Fram. Auðvitað sorglegt fyrir Selfyssinga að þeir séu fallnir samkvæmt Stymma klippara en ég vil gefa þeim þennan og næsta leik. Þeir eiga Fram og síðan HK í næstu tveimur leikjum,“ sagði Sérfræðingurinn.

Einar Ingi Hrafnsson tók undir mikilvægi leiksins og telur að tapi Framarar á Selfossi verði staðan orðin verulega alvarleg í Úlfarsárdalnum.

„Þetta er virkilega áhugaverður leikur og ég held að það sé rétt sem þú segir, næstu tveir leikir hjá Selfyssingum eru þeir leikir sem skera úr um þetta. Framararnir eru mölbrotnir og hverjir verða með? Ég held að þeir átti sig líka á mikilvægi leiksins og átta sig á því að ef þeir tapa á Selfossi þá er komin krísa í Úlfarsárdalnum,“ sagði Einar Ingi.

Fram hefur glímt við talsverð meiðslavandræði að undanförnu en vonir standa til að Dagur Fannar Möller og Marel Baldvinsson verði báðir klárir í slaginn. Stymmi klippari hafði einnig skoðun á leikmannamálum Fram og lét markvörð liðsins, Arnór Mána, heyra það en hann hefur ekki náð sér á strik að undanförnu.

„Dagur Fannar Möller og Marel Baldvinsson ættu báðir að mæta til leiks og síðan væri gaman ef Arnór Máni myndi mæta til leiks,“ sagði Stymmi klippari og skaut þar á frammistöðu markvarðarins.

Þrír leikir fara fram í Olís-deild karla í kvöld en viðureign Selfoss og Fram er án efa einn athyglisverðasti leikur umferðarinnar, enda gætu úrslitin haft mikil áhrif á stöðu beggja liða í neðri hluta deildarinnar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top