HSÍ stendur fyrir dómaranámskeiði fyrir verðandi dómara
Eyjólfur Garðarsson

Dómaranefnd Handknattleikssambands Íslands stendur fyrir dómaranámskeiði í Framhúsinu á morgun, miðvikudaginn 28. október þar sem þátttakendum gefst kostur á að ljúka bæði A- og B-stigi á einu kvöldi.

Námskeiðið er opið öllum sem hafa áhuga á að prófa sig áfram í dómgæslu og ekki er gerð krafa um fyrri reynslu. Dómgæsla getur verið skemmtileg og gefandi leið til að taka þátt í handboltanum, auk þess sem möguleiki er á að vinna sig upp og dæma í efstu deildum landsins.

A-stig námskeiðsins fer fram frá klukkan 17:30 til 19:30 og veitir réttindi til að dæma leiki í 5. flokki og yngri aldursflokkum. Námskeiðsgjaldið er 2.500 krónur.

B-stigið hefst strax að loknu A-stigi, klukkan 19:30, og stendur til 21:00. Það veitir réttindi til að dæma í 3. flokki og yngri aldursflokkum. Þátttakendur þurfa að hafa lokið A-stigi áður en þeir taka B-stig og greiða samtals 3.500 krónur fyrir bæði námskeiðin.

Greitt er á staðnum og allir sem standast prófið fá aðgangskort sem gildir á handboltaleiki um allt land.

HSÍ og Handkastið hvetur alla áhugasama til að mæta, hvort sem um er að ræða iðkendur, foreldra eða aðra handboltaáhugamenn.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top