Hinn 18 ára gamli Gunnar Róbertsson getur skrifað nafn sitt í sögubækurnar í kvöld þegar hann og liðsfélagar hans í Val mæta Stjörnunni á útivelli í Olísdeildinni. Gunnar hefur skorað 90 mörk í fyrstu sjö leikjum sínum á tímabilinu, eða tæplega 13 mörk að meðaltali í leik. Hann er því við það að rjúfa 100 marka múrinn og takist honum það í kvöld verður hann, eftir því sem heimildir bera með sér, fljótasti leikmaður sögunnar til að ná þeim áfanga í efstu deild karla. Sögulega viðmiðið er frá árinu 1963 þegar Ingólfur Óskarsson fór á kostum með Fram. Ingólfur skoraði þá 122 mörk í aðeins tíu leikjum á tímabilinu, eða 12,2 mörk að meðaltali í leik. Blaðaumfjöllun þess tíma sýnir að Ingólfur fór yfir 100 marka múrinn í níunda leik Fram. Fyrir þann leik hafði hann skorað 96 mörk en bætti við 16 mörkum gegn KR og var þar með kominn í 112 mörk eftir níu leiki. Gunnar á því möguleika á að gera betur í kvöld en til þess þarf hann að skora að minnsta kosti tíu mörk. Nái hann 100 mörkum í sínum áttunda leik verður hann einum leik fljótari að þeim áfanga en Ingólfur var árið 1963.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.