Óttast að Hákon Daði hafi slitið krossband
Egill Bjarni Friðjónsson

KA hafði betur gegn Aftureldingu í 7.umferð Olís-deildar karla í KA-heimilinu í gær. Lokatölur 32-28 fyrir KA sem fór upp fyrir Aftureldingu með sigrinum og sitja í 2.sæti deildarinnar.

Afturelding varð fyrir áfalli undir lok fyrri hálfleiks þegar Hákon Daði Styrmisson meiddist á hné og lék ekkert meira með liðinu. Hákon hafði skorað fjögur mörk í leiknum en Leó Halldórsson kom í hornið hjá Mosfellingum í kjölfarið og nýtti eitt af fjórum skotum sínum í leiknum.

Egill Bjarni Friðjónsson

Rætt var um leikinn og meiðslin hjá Hákoni Daða í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins.

,,Hákon Daði lá eftir, eftir skot úr hraðaupphlaupi, engin snerting og þetta lítur ekki vel út þegar maður sér þetta en Kristinn, þú ert með einhverjar fréttir að færa úr Mosfellsbænum," sagði Sérfræðingurinn og gaf boltann á Kristin Björgúlfsson.

,,Það sem ég hef heyrt er að það var tekið test á krossbandinu á honum í gær og það kom vel út en menn eru hræddir um að þetta hafi verið krossbandið. Vonandi er þetta bara liðþófinn og ekkert alvarlegt en það verður að bíða eftir að hann fari í myndatöku."

Hægt er að sjá atvikið hér að neðan.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top