Haukar taka á móti Handball Esch frá Lúxemborg í tveimur Evrópuleikjum í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum um komandi helgi. Báðir leikirnir fara fram á heimavelli Hauka en fyrri viðureign liðanna verður á laugardaginn klukkan 16:00. Síðari leikurinn fer síðan fram á sunnudaginn 25. október klukkan 18:00. Spáir Haukum góði gengu í Evrópubikarnum Frítt verður inn á báða leikina en í tilefni af Bleikum október munu Haukar taka á móti frjálsum framlögum til Bleiku slaufunnar. Haukar hafa farið vel af stað á tímabilinu og er á toppi Olís-deildarinnar með fullt hús stiga eftir sjö leiki. Liðið vann Fram á dögunum sannfærandi 39-23 á útivelli.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.