Einar Bragi orðaður við þýskt úrvalsdeildarlið
Guðmundur Svansson

Þýska úrvalsdeildarliðið Frisch Auf Göppingen þar sem Ýmir Örn Gíslason er fyrirliði, hefur áhuga á að fá íslenska handknattleiksmanninn Einar Braga Aðalsteinsson til liðs við sig. Þetta kemur fram í frétt Stuttgarter Zeitung sem þýski handboltamiðillinn RT Handball Germany vísar til.

Einar Bragi, sem er 24 ára gamall, leikur um þessar mundir með sænska stórliðinu IFK Kristianstad þar sem hann hefur verið að gera góða hluti. Einar Bragi hefur meðal annars skorað 24 mörk í Meistaradeild Evrópu á yfirstandandi tímabili.

Samkvæmt fréttinni er Einar Bragi talinn líklegur arftaki Danans Victors Kløve hjá Göppingen en Kløve er á leið til þýska stórliðsins Flensburg-Handewitt. Einar Bragi er rétthent skytta sem gæti því styrkt lið Göppingen fyrir komandi tímabil.

Einar Bragi sem er uppalinn hjá HK lék með FH áður en hann gekk í raðir sænska félagsins, Kristianstad en hann verður þrefaldur meistari með liðinu á síðustu leiktíð.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top