Það er hægara sagt en gert að koma til baka eftir barnsburð
KA

Aldís Ásta Heimisdóttir sneri aftur á handboltavöllinn um helgina þegar hún lék sinn fyrsta leik með KA/Þór eftir þriggja ára dvöl í Svíþjóð. 

Aldís Ásta eignaðist barn í sumar og hefur undanfarna mánuði unnið hörðum höndum að því að koma sér aftur í leikform. Endurkoman gat vart verið betri því KA/Þór vann sinn fyrsta sigur á tímabilinu þegar liðið lagði Stjörnuna í 6. umferð Olís-deildar kvenna á laugardaginn, 32-28.

„Tilfinningin að snúa aftur í KA-heimilið var mjög góð. Ég elska að spila í KA og hef saknað þess mikið. Mér hefur alltaf liðið vel í KA-heimilinu og það er geggjað að vera komin aftur heim,“ sagði Aldís Ásta í samtali við Handkastið.

Aldís Ásta lék síðustu þrjú ár í Svíþjóð áður en hún sneri aftur heim til Akureyrar. Hún eignaðist barn í sumar og hefur endurkoman á handboltavöllinn því kallað á mikla þolinmæði.

„Endurkoman eftir barnsburð hefur gengið bara vel. Ég átti góða meðgöngu og fæðingu, sem hefur klárlega hjálpað mér í ferlinu. Það er þó hægara sagt en gert að koma til baka eftir barnsburð og þetta hefur reynt töluvert á þolinmæðina.“

„Ég hef þurft að læra að gefa mér tíma, hlusta á líkamann og sætta mig við að hlutirnir gerast ekki alltaf eins hratt og maður myndi vilja. Ég hef verið í sjúkraþjálfun sem hefur hjálpað mér mikið og svo hef ég reynt að vera dugleg að gera þessar mömmuæfingar, sem eru mikilvægar en ekkert mjög skemmtilegar,“ sagði Aldís Ásta létt í bragði.

Ákvörðunin tekin viku fyrir leik

Það var ekki fyrr en skömmu fyrir leikinn gegn Stjörnunni sem ljóst varð að Aldís Ásta myndi snúa aftur á völlinn.

„Það var í raun ekki ákveðið fyrr en svona viku fyrir leik að ég myndi spila. Þá ákváðum við Jonni að stefna á þennan leik sem minn fyrsta leik til baka, ef allt gengi vel fram að honum.“

KA/Þór hafði tapað fyrstu fimm leikjum sínum í Olís-deildinni en tókst loksins að landa sínum fyrsta sigri á tímabilinu gegn Stjörnunni. Aldís Ásta var ánægð með baráttuna í liðinu þótt hún sjái enn ýmislegt sem þurfi að bæta.

„Mér fannst leikurinn bara ágætur. Það var góð stemning í liðinu og við börðumst hver fyrir aðra. Okkur langaði rosalega mikið að vinna þennan leik og við lögðum okkur 100% fram við að ná því. Við unnum vel saman og það voru margar sem áttu góðan leik. Það er samt fullt af hlutum sem við þurfum að vinna í og gera betur, en það var virkilega gott að ná í okkar fyrstu tvö stig á töfluna.“

Ætlar að nýta landsleikjapásuna vel

Þrátt fyrir að vera komin aftur á völlinn segir Aldís Ásta að enn sé töluvert í land áður en hún nái sínu besta líkamlega formi. Hún ætlar að nýta landsleikjapásuna sem nú er í gangi til að byggja sig betur upp.

„Ég þarf að komast í miklu betra form og ná upp betra leikformi. Það er erfitt að byrja aftur að æfa og spila handbolta eftir barnsburð, enda er líkaminn ekki alveg sá sami og hann var áður.“

„En ég veit að formið og líkamlega standið kemur með tímanum og ég er að reyna að vera þolinmóð í því ferli. Það er gott að fá landsleikjapásuna núna og ég ætla að nýta hana vel til að æfa rétt og byggja mig betur upp.“

Aldís Ásta vonast til þess að geta tekið stærra hlutverk með KA/Þór í næstu leikjum en viðurkennir að það sé ekki alltaf auðvelt að sýna þolinmæði þegar kemur að því að sitja á varamannabekknum.

„Ég vona að ég geti spilað fleiri mínútur í næsta leik þar sem ég nenni voða lítið að vera á bekknum, en ég held að ég verði bara að taka einn leik í einu og sjá hvernig mér líður fyrir hvern leik.“

„Það getur alltaf komið eitthvað bakslag en vonandi þolir líkaminn meira og meira álag eftir því sem líður,“ sagði Aldís Ásta Heimisdóttir að lokum í samtali við Handkastið. KA/Þór mætir HK í Kórnum í 7.umferð Olís-deildarinnar, föstudaginn 30. október en bæði lið eru með tvö stig í deildinni ásamt Stjörnunni.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top