Nú geturðu fylgst með framvindu Þjóðarhallarinnar

Framundan eru spennandi tímar í undirbúningi og uppbyggingu fyrirhugaðrar Þjóðarhallar í Laugardal og nú er hægt að fylgjast með framvindu verkefnisins með einföldum hætti. Skipulagsferli verkefnisins er lokið og hönnun hallarinnar liggur fyrir. Næstu skref snúa því að undirbúningi framkvæmda og sjálfri uppbyggingu hallarinnar.

Á vef Þjóðarhallar verður miðlað nýjustu upplýsingum eftir því sem verkefninu vindur fram, meðal annars um undirbúning framkvæmda, uppbyggingu hallarinnar og helstu áfanga verkefnisins.

Þjóðarhöllin mun rísa sunnan við Laugardalshöll og verður eitt stærsta uppbyggingarverkefni sinnar tegundar hér á landi. Á næstu misserum mun verkefnið verða sífellt sýnilegra eftir því sem undirbúningi lýkur og framkvæmdir hefjast.

Þeir sem vilja fylgjast sérstaklega með geta nú skráð sig á póstlista Þjóðarhallar og fengið nýjustu upplýsingar um verkefnið sendar beint í pósthólfið sitt.

Hægt er að skrá sig á póstlistann hér: https://thjodarholl.is/postlisti/

Nánari upplýsingar um verkefnið má finna á thjodarholl.is.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top