Spáir Haukum góði gengu í Evrópubikarnum
Jón Gautur Fótó

Haukar eru í níunda sæti á styrkleikalista handboltamiðilsins Handball Planet yfir þau sextán lið sem miðillinn telur sigurstranglegust í Evrópubikar karla á þessu tímabili.

Hafnarfjarðarliðið er meðal annars fyrir ofan gríska stórliðið AEK Aþenu, sem varð Evrópubikarmeistari árið 2021 og lék til úrslita í keppninni árið 2025. Haukar eru einnig fyrir ofan slóvenska liðið Gorenje Velenje og pólska liðið Ostrovia Ostrów Wielkopolski.

Makedónska liðið Ohrid er í efsta sæti listans en liðið varð Evrópubikarmeistari á síðasta tímabili eftir sigur gegn ungverska liðinu Tatabánya í úrslitum.

Haukar hefja leik í Evrópubikarnum um helgina þegar Esch frá Lúxemborg kemur til Íslands og fara báðir leikirnir fram á Ásvöllum um helgina.

Annað makedónskt lið, Alkaloid, er í öðru sæti en liðið varð Evrópubikarmeistari árið 2025. Gríska stórliðið Olympiacos er í þriðja sæti, en það tapaði eftirminnilega gegn Val í úrslitum Evrópubikarsins árið 2024. Úlfar Páll Monsi Þórðarson leikur með Alakloid.

Tyrkneska stórliðið Besiktas er í fjórða sæti og norska liðið Runar Sandefjord í því fimmta.

Haukar komust í átta liða úrslit Evrópubikarsins á síðasta tímabili og hafa byrjað núverandi tímabil af miklum krafti hér heima. Liðið hefur unnið alla sex leiki sína í Olís-deild karla og situr á toppi deildarinnar.

Tíu efstu lið styrkleikalistans:

  1. Ohrid (Norður-Makedónía)
  2. Alkaloid (Norður-Makedónía)
  3. Olympiacos (Grikkland)
  4. Besiktas (Tyrkland)
  5. Runar Sandefjord (Noregur)
  6. Trimo Trebnje (Slóvenía)
  7. Vojvodina (Serbía)
  8. Nærbø (Noregur)
  9. Haukar (Ísland)
  10. AEK Aþena (Grikkland)

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top