Georgíski handknattleiksmaðurinn Rati Mskhvilidze, sem lék á sínum tíma með Stjörnunni í Garðabæ, er látinn, aðeins 40 ára að aldri. Georgíska handknattleikssambandið hefur staðfest andlát hans. Mskhvilidze lést skyndilega í heimalandi sínu en fregnir af andláti hans bárust mánudaginn 19. október. Samkvæmt georgískum fjölmiðlum veiktist Mskhvilidze skyndilega í verslunarmiðstöð í höfuðborginni Tbilisi. Erlendir fjölmiðlar hafa greint frá því að hjartaáfall hafi orðið honum að bana, en dánarorsök hefur ekki verið staðfest opinberlega. Mskhvilidze var íslenskum handboltaáhugamönnum að góðu kunnur eftir veru sína hjá Stjörnunni í Garðabæ. Mskhvilidze lék meðal annars með Stjörnunni í Garðabæ tímabilið 2007/08. Hann átti einnig farsælan feril erlendis og lék meðal annars með serbneska félaginu Metaloplastika og Eurofarm Rabotnik í Norður-Makedóníu. Mskhvilidze var jafnframt landsliðsmaður Georgíu um árabil og lék alls 28 landsleiki þar sem hann skoraði 112 mörk. Eftir að leikmannaferlinum lauk sneri hann sér að þjálfun og starfaði áfram innan handboltahreyfingarinnar. Andlát hans hefur vakið sorg í georgíska handboltasamfélaginu en hann var aðeins fertugur að aldri.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.