Víkingur vann mikilvægan sex marka útisigur á Selfossi, 34-28, í Olís-deild karla í kvöld. Staðan var jöfn í hálfleik, 16-16, en Víkingar voru sterkari í síðari hálfleik og tryggðu sér sigurinn. Rökkvi Pacheco Steinunnarson átti stórleik í marki Víkings og varði 17 skot auk þess að skora eitt mark þá var Sigurður Páll Matthíasson drjúgur sem endra nær í markaskorun Víkings. Selfyssingar byrjuðu leikinn betur og komust í 2-0 áður en gestirnir náðu að svara. Heimamenn voru lengst af með frumkvæðið í fyrri hálfleik og náðu mest þriggja marka forskoti, meðal annars í stöðunni 8-5. Víkingar gáfust þó ekki upp og náðu að vinna sig aftur inn í leikinn. Selfyssingar voru tveimur mörkum yfir, 16-14, undir lok fyrri hálfleiks en Víkingar skoruðu síðustu tvö mörkin og jöfnuðu metin í 16-16 áður en flautað var til leikhlés. Selfyssingar skoruðu fyrsta mark síðari hálfleiks og komust í 17-16 en þá tóku gestirnir við sér. Víkingar náðu forystunni í stöðunni 17-18 og eftir að Selfoss jafnaði í 18-18 tóku gestirnir öll völd á vellinum. Víkingar skoruðu sex af næstu sjö mörkum leiksins og breyttu stöðunni úr 18-18 í 19-24. Selfyssingar náðu að minnka muninn niður í þrjú mörk en gestirnir héldu áfram að svara fyrir sig. Þegar leið á síðari hálfleikinn náðu Víkingar sex marka forskoti, 28-22, og síðar sjö marka forskoti í stöðunni 34-27. Selfyssingar skoruðu síðasta mark leiksins en niðurstaðan varð öruggur sex marka sigur Víkings, 34-28. Sigurður Páll Matthíasson fór mikinn í liði Víkings og var markahæstur allra á vellinum með ellefu mörk. Jón Karl Einarsson skoraði sex mörk og Gunnar Hrafn Pálsson fimm. Rökkvi Pacheco Steinunnarson átti sömuleiðis frábæran leik í marki Víkings og varði 17 skot auk þess að skora eitt mark. Hjá Selfossi dreifðist markaskorunin nokkuð jafnt en þeir Anton Breki Hjaltason, Hákon Garri Gestsson og Hannes Höskuldsson skoruðu sex mörk hver. Alexander Hrafnkelsson varði sex skot í marki Selfoss.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.