Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari karla, tilkynnti í dag 20 manna hóp fyrir fyrstu tvo leiki Íslands í undankeppni EM 2028. Ísland tekur á móti Úkraínu miðvikudaginn 4. nóvember klukkan 19:30 og heimsækir síðan Eistland sunnudaginn 8. nóvember klukkan 16:00. Serbía er fjórða liðið í riðlinum. Hópurinn kemur saman mánudaginn 2. nóvember. Miðasala á heimaleikinn gegn Úkraínu er hafin á Stubb. Snorri Steinn velur 20 leikmenn fyrir fyrstu leiki undankeppninnar ,,Leikmennirnir eru flestir þokkalega heilir heilsu og þetta var nokkuð klippt og skorið að Þorsteinn Leó gat ekki verið með. Elliði Snær fær frí í seinni leiknum af persónulegum ástæðum og síðan valdi ég að velja Donna, Viggó og Ómar og vera ekkert að flækja það of mikið. Ég losaði mig því við þann hausverk og valdi 20 leikmenn sem er í það mesta en Viggó er í leikbanni í fyrri leiknum gegn Úkraínu og ég vild hafa þrjá markmenn á æfingum." Ítarlegra viðtal við Snorra Stein má sjá hér að neðan þar sem hann ræðir meðal annars stöðuna á Teit Erni Einarssyni sem var ekki valinn í hópinn, markmannsstöðuna og meira til.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.