Aldís Ásta orðin lögleg með KA/Þór
KA

Aldís Ásta Heimisdóttir er orðin lögleg með KA/Þór og komin með leikmannasamning við félagið og gæti því leikið sinn fyrsta leik með liðinu eftir heimkomuna þegar Stjarnan kemur í heimsókn í 6. umferð Olís-deildar kvenna á morgun. Leikurinn hefst klukkan 17:00 í KA-heimilinu.

Aldís Ásta sneri heim eftir farsæl ár hjá Skara í Svíþjóð en hún eignaðist barn í sumar. Endurkoma hennar yrði kærkomin viðbót fyrir KA/Þór sem leitar enn að sínum fyrstu stigum á tímabilinu.

Hún gekk til liðs við Skara frá KA/Þór haustið 2022 og var í lykilhlutverki þegar félagið varð bæði deildar- og Svíþjóðarmeistari vorið 2025. Sænski meistaratitillinn var sá fyrsti í sögu félagsins en Skara lagði Sävehof í úrslitaeinvíginu.

Aldís lét talsvert að sér kveða í úrslitakeppninni og skoraði meðal annars níu mörk í fyrsta leiknum gegn Kristianstad og fimm mörk í öðrum úrslitaleiknum gegn Sävehof.

KA/Þór fær því til baka leikmann með dýrmæta reynslu úr sænska handboltanum. Fyrir förina til Svíþjóðar hafði Aldís Ásta leikið 170 keppnisleiki fyrir liðið.

KA/Þór sem er stigalaust í Olís-deildinni fær Stjörnuna í heimsókn á morgun en Stjarnan er með tvö stig í 9.sæti deildarinnar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top