Norski landsliðsmaðurinn Simen Lyse er sagður vera á leið til danska úrvalsdeildarliðsins Fredericia frá franska stórliðinu Paris Saint-Germain næsta sumar. Þetta kemur fram í dönskum fréttum þar sem því er haldið fram að samningur milli leikmannsins og Fredericia hafi þegar verið undirritaður. Tíðindin vekja nokkra athygli enda gekk hinn 26 ára gamli Lyse til liðs við PSG fyrr á þessu ári og er samningsbundinn franska félaginu til sumarsins 2029. Samkvæmt upplýsingum danska miðilsins hefur Fredericia hins vegar tryggt sér þjónustu Norðmannsins frá og með sumrinu 2027, tveimur árum áður en núverandi samningur hans við PSG rennur út. Lyse vakti mikla athygli með norska stórliðinu Kolstad þar sem hann var meðal lykilmanna liðsins undanfarin ár. Hann var meðal annars valinn besta vinstri skytta norsku úrvalsdeildarinnar tímabilið 2024/25. Norðmaðurinn hefur einnig öðlast töluverða reynslu á alþjóðavettvangi, bæði í Meistaradeild Evrópu og með norska landsliðinu, sem hann hefur leikið með á Evrópu- og heimsmeistaramótum auk Ólympíuleikanna. Verði félagaskiptin að veruleika væri um mikinn liðsstyrk að ræða fyrir Fredericia og jafnframt óvænta brottför frá PSG, þar sem Lyse hefur aðeins verið í skamman tíma.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.